Laun um jólin

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki álag á stórhátíðum, en þeir jóladagar sem eru stórhátíðir teljast:
  • aðfangadagur eftir kl. 12,
  • jóladagur,
  • gamlársdagur eftir kl. 12,
  • nýársdagur.
Annar í jólum telst auk þess almennur frídagur. Öll vinna á stórhátíðardögum greiðist með tímakaupi, sem er 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu. Fyrir yfirvinnu á öðrum frídögum skal greiða 80% álag á dagvinnutímakaup eða 1,0385% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu. Í vaktavinnu eru til tvær reglur um greiðslur á þessum dögum. Annarsvegar hjá þeim sem eru með vetrarfrí og svo hjá hinum sem ekki eru með vetrarfrí. Sjá nánar í kjarasamningum
  1. 7/1/2025 3:01:33 PM SGS óskar eftir framkvæmdastjóra
  2. 6/4/2025 1:11:55 PM Burt með mismunun - ný vefsíða
  3. 5/5/2025 3:54:17 PM VLFS vinnur mál í Félagsdómi vegna alvarlegra brota gegn fél…
  4. 5/2/2025 2:10:50 PM Orlofsuppbót 2025 - reiknivélar fyrir félagsmenn