Leiðréttir kauptaxtar fyrir starfsfólk ríkisins

Eins og áður hefur verið greint frá þá var skrifað undir samkomulag í desember síðastliðinn um launaþróunartryggingu vegna starfsfólks hjá ríkinu, en samkvæmt tryggingunni hækka laun ríkisstarfsmanna innan aðildarfélaga SGS um að meðaltali 1,8% afturvirkt frá 1. janúar 2017. Síðastliðinn föstudag undirritaði SGS svo samkomulag við ríkið um hvernig hækkunin verður nýtt. Samkvæmt samkomulaginu eru allir starfsmenn færðir í 6. þrep launatöflunnar, sem er efsta þrepið og taflan hækkuð öll um 1%. Þetta gerir það að verkum að fólk ber aðeins misjafnt úr býtum eftir aldri og röðun í launatöflu, en launatöflur eru þá ekki háðar lífaldri lengur og því verður auðveldara að breyta töflunni til samræmis við aðra í næstu kjarasamningum. Félagsmenn sem starfa við ræstingar fá 1,8% hækkun á tímamælda og flatamælda ákvæðisvinnu. Leiðréttingin kemur til útborgunar á flestum stöðum þann 1. mars. SGS hefur nú leiðrétt áðurútgefna kauptaxta þar sem launataflan hefur verið leiðrétt afturvirkt frá 1. júní 2017. Kauptaxtana má nálgast hér.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag