Mansal á vinnumarkaði – Handbók fyrir starfsfólk stéttarfélaga

Starfsgreinasamband Íslands hefur gefið út handbók um mansal á vinnumarkaði, en handbókinni er ætlað að auðvelda starfsfólki stéttarfélaga að þekkja mansal, geta greint það og ekki síst að upplýsa um hvert á að snúa sér þegar grunsemdir um mansal vakna. Í bókinni er m.a. að finna skilgreiningar á mansali sem og upplýsingar um helstu einkenni og vísbendingar um mansal á vinnustöðum eða meðal starfsfólks. Þá eru settar fram gagnlegar spurningar fyrir starfsfólk stéttarfélaganna sem gott er að hafa í huga þegar einstaklingar leita til stéttarfélaganna vegna mansalsmála og jafnframt nokkrar meginreglur varðandi viðbrögð stéttarfélaga þegar upp koma mál þar sem grunur er um mansal. Handbókin er aðgengileg öllum og hana má nálgast í heild sinni hér. Þá er vert að minna á að Starfsgreinasambandið býður, í samráði við stýrihóp innanríkisráðuneytisins, upp á fræðslu um mansal fyrir starfsfólk, fagaðila og almenning og eru stéttarfélögin hvött til að nýta sér þá fræðslu.
  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)