Ný stjórn ASÍ-UNG

Á 6. þingi ASÍ-UNG sem haldið var föstudaginn 11. september var kjörin ný stjórn. Vegna samkomutakmarkana var ákveðið að hafa þingið rafrænt og fresta allri málefnavinnu fram á veturinn.

Öll aðildarfélög ASÍ geta sent fulltrúa, einn aðalmann, einn varamann og aukafulltrúa á þingið, ásamt því hefur fráfarandi stjórn rétt til setu. Þingið sátu alls 30 fulltrúar, ásamt 8 starfsmönnum ASÍ og einum gesti. Fundarstjóri var Róbert Farestveit, hagfræðingur hjá ASÍ og fundarritari Halldór Oddsson, lögfræðingur hjá ASÍ.

Eins og áður sagði var ný stjórn ASÍ-UNG kjörin á þinginu og koma fjórir af níu stjórnarmönnum frá félögum innan SGS, auk þriggja í varastjórn. SGS býður nýja stjórn velkomna til starfa og óskar stjórnarmönnum öllum velfarnaðar í starfi.

Nýja stjórn skipa:
Alma Pálmadóttir, Efling-Stéttarfélag
Aron Máni Nindel Haraldsson, Félag tæknifólks í rafiðnaði
Ástþór Jón Tryggvason, Verkalýðsfélag Suðurlands
Guðmundur Hermann Salbergsson, VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna
Gundega Jaunlinina, Verkalýðsfélagið Hlíf
Hulda Björnsdóttir, FVSA
Lilja Hrönn Gunnarsdóttir, VR
Magdalena Samsonowicz,  Efling-Stéttarfélag
Þorvarður Bergmann Kjartansson, VR

Varastjórn:
Birkir Snær Guðjónsson, AFL Starfsgreinafélag
Elín Ósk Sigurðardóttir, Stéttarfélag Vesturlands
Inga Fanney Rúnarsdóttir, Verkalýðsfélag Grindavíkur

  1. 12/3/2025 2:23:43 PM Starfsemi erlendra vörsluaðila
  2. 12/3/2025 11:44:05 AM Nýr stofnanasamningur undirritaður við Land og Skóg
  3. 11/28/2025 1:22:08 PM Heimsókn til Vestmannaeyja
  4. 11/27/2025 4:51:44 PM Blikur á lofti í atvinnumálum á landsbyggðinni