Nýr samningur við NPA miðstöðina

Þann 9. maí síðastliðinn undirrituðu Starfsgreinasamband Íslands og Efling stéttarfélag nýjan kjarasamning við NPA miðstöðina. Samningurinn tekur til vinnu félagsmanna aðildarfélaga SGS í störfum sem aðstoðarfólk fatlaðs fólks og gildir frá 1. nóvember 2022 til 31. janúar 2024. Samningurinn tekur mið af aðalkjarasamningi SGS við Samtök atvinnulífsins og hefur sömu samningsforsendur og hann. Þá undirrituðu samningsaðilar einnig sérstakan samning um heimil frávik frá vakta- og hvíldartíma.

Einu breytingarnar sem gerðar voru frá fyrri samningi eru hækkanir launa, sem eru þær sömu og á almenna markaðnum.

Mánaðarlaun þeirra sem eru að byrja hækka um 40.256 kr.
Mánaðarlaun þeirra sem eru búnir að vera í eitt ár hækka um 42.201 kr.
Mánaðarlaun þeirra sem eru búnir að vera í þrjú ár hækka um 46.406 kr.
Mánaðarlaun þeirra sem eru búnir að vera 5 ár eða lengur hækka um 52.963 kr.

Þá var samið um hækkun vaktaálags á stórhátíðardögum, annars vegar úr 90% í 120% og hins vegar úr 120% í 165%.

Samninginn í heild sinni, þar á meðal sérstakan samning um heimil frávik frá vakta- og hvíldartíma, má nálgast hér.

  1. 7/15/2024 10:47:20 AM Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga 2024-2028…
  2. 7/8/2024 11:05:45 AM Kjarasamningur við ríkið 2024-2028 samþykktur
  3. 7/5/2024 11:51:04 AM Kosið um nýjan kjarasamning við sveitarfélögin
  4. 7/4/2024 12:49:29 PM Kjarasamningur við sveitarfélögin í höfn