Nýtt þýðingarapp komið í loftið

Orðakista ASÍ - OK er nú orðið aðgengileg, en um er að ræða smáforrit (app) sem er aðallega ætlað trúnaðarmönnum stéttarfélaga og erlendum félagsmönnum.

Smáforritið þýðir orð tengd íslenskum vinnumarkaði og er allt efni fengið úr kjarasamningum og öðru útgefnu efni sem tengist vinnumarkaði með beinum hætti. Lögð var áhersla á forrit sem væri einfalt og fljótlegt í notkun. Þegar orð er slegið inn birtast allar myndir þess sem finnast í gögnunum, ásamt þýðingu og setningadæmum. Smáforritið er aðgengilegt fyrir öll snjalltæki, bæði Android og iOS.

Google Play Store: http://bit.ly/ordakista-android
Apple App Store: http://bit.ly/ordakista-ios

  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)