Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2023

Starfsgreinasambandið vill minna félagsmenn á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert. Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.

Almennur vinnumarkaður
Orlofsuppbót er 56.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní.

Ríki
Ekki hefur verið samið um fjárhæð uppbótarinnar. Á árinu 2022 var orlofsuppbótin 53.000 kr. miðað við fullt starf.

Sveitarfélög
Persónuuppbót er 55.700 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. maí. Upphaflega var uppbótin 54.350 kr. en samkomulag náðist um að hækka uppbótina á fundi samráðsnefndar samningsaðila 25. apríl 2023.

Sjá nánar í kjarasamningum viðkomandi aðila.

  1. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  2. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  3. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  4. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)