Ráðstefna - Þrælahald nútímans

Fimmtudaginn 14. september verður haldin ráðstefnan Þrælahald nútímans þar sem sjö sérfræðingar erlendis frá miðla af reynslu sinni og þekkingu. Um er að ræða einstaklinga sem hafa mikla þekkingu og reynslu af baráttunni gegn mansali; lögreglumenn, saksóknarar og sérfræðingar í vinnu með fórnarlömbum. Ráðstefnan fer fram á Grand Hótel Reykjavík (Gullteigi) og hefst klukkan 08:30. Skráning á ráðstefnuna fer fram hér. Vakin er athygli á því að ráðstefnan fer fram á ensku en verður túlkuð yfir á íslensku. Mansal er ein stærsta ógn sem mannkynið stendur frammi fyrir og er áætlað að milljónir einstaklinga séu hagnýttir í mansal árlega, ýmist í eigin landi eða erlendis, í vinnumansal, kynlífsánauð, betl, líffærasölu eða með öðrum hætti. Með mansali er verið að nýta viðkomandi einstakling eða hóp einstaklinga í ábataskyni og brjóta gegn frelsi viðkomandi. Starfsgreinasamband Íslands, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborg ásamt Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar standa að ráðstefnunni, en ráðstefnan er hluti af verkefninu „Gegn mansali – samvinna yfir landamæri" sem hlaut styrk úr Jafnréttissjóði 2016. Dagskrá ráðstefnunnar: 08:30 – 09:00 Setning og ávörp Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra og Þorsteins Víglundssonar, félags- og jafnréttismálaráðherra 09:00 – 10:00 Robert Crepinko, yfirmaður mansalsmála hjá Europol Trafficking in Human Beings – a global priority 10:00 – 10:30 Kaffi 10:30 – 11:10 Knut Bråttvik, samhæfingarstjóri í mansali hjá KRIPOS í Noregi How the Norwegian police are organized to combat THB 11:10 – 11:40 Mildred Mickelsen, stjórnandi ROSA í Noregi (vinna með fórnarlömbum) Providing safety and assistance to victims of trafficking – best practices and challenges 11:40 – 12:00 Panell: Robert Crepinko, Knut Bråttvik , Mildred Mikkelsen 12:00 – 13:00 Hádegismatur 13:00 – 14:00 Rudolf Christoffersen, saksóknari frá Noregi New forms of THB – Challenges for the police and prosecution 14:00 – 14:20 Elisabeth Green, samhæfingaraðili vegna mansalsmála í Svíþjóð Councelling, information and advice for victims of human trafficking 14:20 – 14:40 Lars Ågren, saksóknari frá Svíþjóð Three cases of human trafficking in Sweden 14:40 – 15:00 Henrik Holm Sørensen, yfirmaður mansalsrannsókna í Danmörku The Cleaning Industry – a dirty business 15:00 – 15:30 Kaffi 15:30 – 15:50 Panell: Rudolf Christoffersen, Lars Ågren, Henrik Holm Sorensen, Elisabeth Green 15:50 – 16:15 Samantekt Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðallögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu Dagskráin á PDF-formi. Skráning á ráðstefnuna.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag