Samkeppni um nafn á nýju íbúðaleigufélagi ASÍ og BSRB

Alþýðusamband Íslands og BRSB hafa stofnað íbúðafélag sem starfar í nýju íbúðarkerfi sem nú er verið að taka upp hér á landi. Íbúðakerfið byggir á danskri fyrirmynd og verður hagstæður og öruggur valkostur fyrir fólk á leigumarkaði. Íbúðafélagið er sjálfseignastofnun sem starfar samkvæmt lögum um almennar íbúðir og er rekin án hagnaðarmarkmiða. Skilyrði er að íbúðirnar verði leigðar út til fólks með lágar- og meðaltekjur. Íbúðafélagið hefur undirritað viljayfirlýsingu við Reykjavík og Hafnarfjarðabær um lóðir fyrir 1150 íbúðir á næstu 4 árum og mun undirbúningur framkvæmda vegna 180 íbúða hefjast á þessu ári. Samhliða þessum fyrstu skrefum vinnur íbúðafélagið að lausn fyrir sveitafélög á landsbyggðinni. Óskað er eftir tillögum um nafn á félagið og er því blásið til nafna samkeppni. Nafnið skal vera þjált í notkun og gefa félaginu jákvæða ímynd. Tillögum um nöfn má skila inn fyrir 16. október á netfangið asi@asi.is. Frjálst er að senda inn fleiri en eina tillögu. Verðlaun kr. 50.000 verða veitt fyrir bestu tillöguna. Ef fleiri en einn leggja til vinningsnafnið verður vinningshafinn dreginn út.
  1. 7/1/2025 3:01:33 PM SGS óskar eftir framkvæmdastjóra
  2. 6/4/2025 1:11:55 PM Burt með mismunun - ný vefsíða
  3. 5/5/2025 3:54:17 PM VLFS vinnur mál í Félagsdómi vegna alvarlegra brota gegn fél…
  4. 5/2/2025 2:10:50 PM Orlofsuppbót 2025 - reiknivélar fyrir félagsmenn