Samkomulag um að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi

Í dag undirrituðu Starfsgreinasamband Íslands, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðaþjónusta bænda, embætti  Ríkisskattstjóra  og Vinnumálastofnun yfirlýsingu um samstarf til að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi í ferðaþjónustugreinum. Það voru þau Kistján Gunnarsson, formaður SGS, Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF, Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda, Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar og Jóhann Ásgrímsson, fulltrúi Ríkisskattstjóra sem undirrituðu yfirlýsinguna að Hótel Reynihlíð við Mývatn. Yfirlýsingin fer á eftir; „Starfsgreinasamband Íslands, f.h. aðildarfélaga sinna, Samtök Ferðaþjónustunnar, Ferðaþjónusta bænda, embætti  Ríkisskattstjóra  og Vinnumálastofnun lýsa vilja sínum til samstarfs til þess að vinna gegn óskráðri svartri atvinnustarfsemi  í ferðaþjónustugreinum, þ.e. í veitinga-  og gistihúsum, greiðasölu og hliðstæðri starfsemi. Það er markmið samstarfsins að hvarvetna sé fylgt ákvæðum kjarasamninga í ferðaþjónustugreinum og að leikreglur á vinnumarkaði séu virtar. Markmiðinu hyggjast samstarfsaðilar ná með markvissu vinnustaðaeftirliti, gegnsæi og miðlun upplýsigna milli aðila. Samstarfsaðilarnir hvetja vinnuveitendur og starfsfólk til þess að virða reglur um vinnustaðaskírteini þar sem þau auðvelda m.a. gegnsæi í því sambandi að um lögmæta, skráða atvinnustarfsemi sé að ræða á viðkomandi vinnustað.“
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag