SGS auglýsir eftir framkvæmdastjóra

Starfsgreinasamband Íslands óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf framkvæmdastjóra. Um er að ræða afar fjölbreytt og krefjandi starf.

Starfssvið:

  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri
  • Stefnumótun og framkvæmd ákvarðana
  • Umsjón með gerð og túlkun kjarasamninga
  • Umsjón með kynningarstarfi, útgáfu og samskiptum við fjölmiðla
  • Skipulagning samráðs og samstarfs aðildarfélaga
  • Samskipti við innlend og erlend aðildarfélög

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun og rekstri
  • Reynsla og þekking á málefnum stéttarfélaga og kjarasamningum
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfileikar
  • Hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti
  • Góð greiningar- og skipulagshæfni
  • Góð kunnátta í íslensku, ensku og einu norðurlandamáli

Umsóknarfrestur er til og með 18. júlí n.k.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið með því að senda umsókn á netfangið vilhjalmur@vlfa.is. Umsókninni þarf að fylgja ýtarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfsgreinasamband Íslands er stærsta landssambandið innan ASÍ og samanstendur af 19 stéttarfélögum verkafólks með um 72 þúsund félagsmenn. Hlutverk sambandsins er að styðja og styrkja aðildarfélögin í þeirra starfi og hagsmunabaráttu félagsmanna þeirra. Skrifstofa sambandsins er í Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík.

  1. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag
  2. 3/11/2024 3:03:03 PM Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning SGS og SA (1)
  3. 3/7/2024 6:41:09 PM Stöðugleika- og velferðarsamningur í höfn
  4. 1/24/2024 4:49:25 PM Breiðfylkingin vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara