SGS skipuleggur ungliðafund

Þriðja árið í röð skipuleggur Starfsgreinasamband Íslands fund fyrir ungt fólk í hreyfingunni, að þessu sinni á Bifröst dagana 30. og 31. maí næstkomandi. Svo vel hefur tekist til síðustu tvö ár að þetta er nú þegar orðinn fastur liður í starfi sambandsins. Hvert aðildarfélag SGS getur sent tvo fulltrúa, eina konur og einn karl þrjátíu ára og yngri á fundinn. Dagskráin er skipulögð samkvæmt óskum ungliða sjálfra og í lok hvers fundar er farið yfir óskir fyrir næsta ár. Að þessu sinni verður byrjað á hópastarfi til að hrista hópinn saman og kynnast betur, þá verður fjallað um verkalýðsbaráttuna í alþjóðlegu samhengi, framtíð vinnumarkaðarins og svo kemur fræðslufulltrúi samtakanna 78 og fjallar um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Að venju munu ungliðarnir hitta formenn félaganna undir lok fundarins og koma þeim áherslum sem þau vilja til skila í sín félög. Með þátttöku sinni í ungliðafundunum er ekki verið að skuldbinda sig á neinn hátt til frekari þátttöku í verkalýðshreyfingunni en reynslan hefur sýnt að þátttakendur verða flestir virkir í sínu félagi í framhaldinu. Aðildarfélögin tilnefna sína fulltrúa fyrir 10 maí næstkomandi. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá ungliðafundunum 2016 og 2017. [gallery ids="57656,57651,57650,57649,57652,114422,114423,114424,114418"]
  1. 7/1/2025 3:01:33 PM SGS óskar eftir framkvæmdastjóra
  2. 6/4/2025 1:11:55 PM Burt með mismunun - ný vefsíða
  3. 5/5/2025 3:54:17 PM VLFS vinnur mál í Félagsdómi vegna alvarlegra brota gegn fél…
  4. 5/2/2025 2:10:50 PM Orlofsuppbót 2025 - reiknivélar fyrir félagsmenn