Sveitarfélagasamningurinn samþykktur

Atkvæðagreiðslu er nú lokið um nýjan kjarasamning á milli Starfsgreinasambandsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var 20. nóvember síðastliðinn. Starfsgreinasambandið fór með umboð 15 aðildarfélaga sinna og var samningurinn samþykktur í öllum félögunum, en í heildina samþykktu yfir 90% þeirra sem greiddu atkvæði. Félögin sem SGS fór með umboð fyrir eru: Aldan stéttarfélag, AFL starfsgreinafélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Stéttarfélag Vesturlands, Stéttarfélagið Samstaða, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðsfélag Þórshafnar og Verkalýðsfélag Vestfirðinga. Kjörsókn var í heildina 33%, 2.702 félagar voru á kjörskrá og atkvæði greiddu 899. Hér má sjá hvernig atkvæði féllu í einstaka félögum.
  1. 7/1/2025 3:01:33 PM SGS óskar eftir framkvæmdastjóra
  2. 6/4/2025 1:11:55 PM Burt með mismunun - ný vefsíða
  3. 5/5/2025 3:54:17 PM VLFS vinnur mál í Félagsdómi vegna alvarlegra brota gegn fél…
  4. 5/2/2025 2:10:50 PM Orlofsuppbót 2025 - reiknivélar fyrir félagsmenn