Þekkir þú rétt þinn?

Síðastliðið sumar stóð Starfsgreinasamband Íslands (SGS) fyrir átaki undir yfirskriftinni „Þekkir þú þinn rétt?“, en tilgangurinn með átakinu var að vekja unga einstaklinga til umhugsunar um réttindi sín á vinnumarkaði. Það sýndi sig sl. sumar að mikil þörf var á átaki sem þessu, enda náði það augum og eyrum fjölmargra, m.a. fjölmiðla og þótti almennt takast vel. Í tengslum við umrætt átak lét SGS m.a. útbúa sérstakt kynningarefni (sjá að neðan) í þeim tilgangi að vekja ungt fólk á vinnumarkaði til umhugsunar um rétt sinn. Hins vegar er góð vísa aldrei of oft kveðin og því er ekki úr vegi að rifja upp átakið frá því í fyrrasumar. Á næstunni mun SGS m.a. birta reglulega fróðleiksmola inn á fésbókarsíðunni "Vinnan mín", með það að markmiði að minna fólk á rétt sinn og vekja fólk almennt til umhugsunar um þessi mál. Starfsgreinasambandið hvetur ungt fólk, sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði, að vera vel vakandi varðandi réttindi sín og kjör og ekki hika við að hafa samband við sitt stéttarfélag ef það koma upp einhver vandamál eða einhverjar spurningar vakna. Fésbókarsíðan "Vinnan mín" Þekkir þú rétt þinn - einblöðungurÞekkir þú rétt þinn (2) Þekkir þú rétt þinn (1) Þekkir þú rétt þinn (7) Þekkir þú rétt þinn (6) Þekkir þú rétt þinn (4) Þekkir þú rétt þinn (3)Þekkir þú rétt þinn (5)
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag