Þriggja daga þing ASÍ hefst á morgun

Þrjú hundruð fulltrúar frá 48 stéttarfélögum af öllu landinu koma saman á 43. þingi ASÍ á morgun. Starfsgreinasambandið á 119 fulltrúa á þinginu í ár, sem koma frá 19 aðildarfélögum sambandins. Á þinginu verður stefna sambandsins til næstu tveggja ára mörkuð auk þess sem ný forysta verður kjörin á föstudag. Ljóst er að nýr forseti ASÍ og tveir varaforsetar verða kjörnir auk þess sem búast má við nokkrum breytingum á fulltrúum í miðstjórn ASÍ en miðstjórnin fer með æðsta vald í Alþýðusambandinu á milli þinga. Tvö hafa tilkynnt framboð til forseta ASÍ, þau Drífa Snædal framkvæmdastjóri SGS og Sverrir Mar Albertsson framkvæmdastjóri og stjórnarmaður Afls. Til varaforseta hafa þrír tilkynnt framboð; Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness. Fimm málefni verða rædd sérstaklega í hópavinnu á þinginu. Þau eru: Tekjuskipting og jöfnuður Jafnvægi atvinnuþátttöku og einkalífs Tækniþróun og skipulag vinnunnar Heilbrigðisþjónusta og Velferðarkerfið Húsnæðismál Í maí og september á þessu ári hélt ASÍ 18 fundi á 11 stöðum á landinu til að undirbúa umræðuna fyrir þingið en alls tóku tæplega 600 manns úr grasrót verkalýðshreyfingarinnar þátt í þessum fundum. Unnið verður áfram með niðurstöðu þeirra funda á þinginu. Nánar má fræðast um þing ASÍ á sérstökum þingvef ASÍ. Streymt verður frá upphafi þingsins á miðvikudag á heimasíðu ASÍ.
  1. 10/18/2024 3:34:22 PM Finnbjörn Hermannsson endurkjörinn forseti ASÍ
  2. 10/16/2024 7:39:49 PM 46. þing ASÍ sett í dag
  3. 10/9/2024 5:18:22 PM Verkalýðsfélag Akraness fagnar 100 ára afmæli
  4. 10/9/2024 4:43:46 PM Formaður SGS á fundi með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingi…