Vel heppnuðu þingi SGS lokið

4. þingi Starfsgreinasambands Íslands lauk rétt eftir hádegi í dag á Akureyri. Samþykktar voru fjórar ályktanir; um atvinnumál, húsnæðismál, kjaramál og ríkisfjármál. Að auki var starfsáætlun til tveggja ára samþykkt og fræðslustefna Starfsgreinasambands Íslands. Björn Snæbjörnsson (Eining-Iðja) var endurkjörinn formaður til næstu tveggja ára og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir (Afl starfsgreinafélag) var sömuleiðis endurkjörinn varaformaður. Miðstjórn sambandsins er óbreytt en í henni sitja Aðalsteinn Á. Baldursson (Framsýn stéttarfélag) Halldóra Sveinsdóttir (Báran stéttarfélag), Kolbeinn Gunnarsson (Vlf. Hlíf), Signý Jóhannesdóttir (Stéttarfélag Vesturlands) og Sigurður Bessason (Efling stéttarfélag). Þingið var haldið undir yfirskriftinni Samstaða og Samvinna og var það mál fólks að sá hafi verið andinn á þinginu. Næstu verkefni eru kjarasamningar en SGS fer með umboð sextán aðildarfélaga sinna í viðræðunum. Ályktanir þingsins má nálgast hér. Björn Snæbjörnsson formaður Starfsgreinasambandsins er með síma 894 0729   [caption id="attachment_1983" align="aligncenter" width="300"]Varaformaður og formaður SGS, þau Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir og Björn Snæbjörnsson voru  endurkjörin til næstu tveggja ára Varaformaður og formaður SGS, þau Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir og Björn Snæbjörnsson voru endurkjörin til næstu tveggja ára[/caption]
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag