Konur taka af skarið!

Starfsgreinasambandið vill vekja athygli á námskeiðunum "Konur taka af skarið! " sem fara fram á nokkrum stöðum á landinu á næstunni. Um er að ræða námskeið sem Starfsgreinasambandið, AkureyrarAkademían, Jafnréttisstofa, og JCI Sproti standa fyrir.Markmiðið með námskeiðunum er að hvetja konur til þátttöku og áhrifa innan verkalýðshreyfingarinnar. Námskeiðin er opið öllum konum sem eru félagar í Starfsgreinasambandi Íslands eða í starfsmannafélögum sveitafélaganna og þeim að kostnaðarlausu. Fyrirhuguð námskeið:
Dagskrá:
  • Að bjóða kynjakerfinu birginn – Hugrún R. Hjaltadóttir, sérfræðingur á Jafnréttisstofu
  • Staða verkalýðsbaráttunnar í dag – Drífa Snædal, forseti ASÍ
  • Uppbygging verkalýðsfélaganna – Drífa Snædal, forseti ASÍ
  • Leiðtogaþjálfun – Viktor Ómarsson, JCI Sproti
  • Að hafa áhrif og koma sínu á framfæri – Viktor Ómarsson, JCI Sproti
  • Að starfa í verkalýðshreyfingunni – Drífa Snædal, forseti ASÍ
Skráningar skulu berast á netfangið kristinheba@akak.is eða í síma 461 4006. Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA