Ályktanir aðalfundar Félags íslenskra félagsliða

Félag íslenskra félagsliða hélt sinn 11. aðalfund þann 5. maí sl. Á fundinum voru eftirfarandi ályktanir samþykktar: Aðalfundur Félags íslenskra félagsliða 5. maí 2014 skorar á samninganefnd Sambands Íslenskra sveitarfélaga að viðurkenna menntun og störf félagsliða í yfirstandandi kjarasamningsviðræðum. Félagsliðar hafa undanfarin ár lagt áherslu á að menntun þeirra sé viðurkennd til launa og störfin metin, en þess hefur ekki verið gætt sem skyldi hjá þeim félagsliðum sem starfa hjá sveitarfélögunum. Nú standa yfir samningaviðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga og því skorar aðalfundurinn á samninganefndina að láta þessar áherslur sjást í nýjum samningi. Aðalfundur Félags íslenskra félagsliða 5. maí 2014 lýsir yfir þungum áhyggjum af því hversu langan tíma vinna við löggildingu starfheitisins félagsliði hefur tekið. Félagið hefur rekið þetta mál nú í næstum áratug og eru félagsliðar því orðnir langeygðir eftir niðurstöðunni. Því skorar aðalfundur félagsins á stjórnvöld að ljúka þeirri vinnu hið fyrsta.[hr toTop="false" /]
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag