Ályktanir af þingi SGS

Á nýloknu þingi Starfsgreinasambands Íslands voru samþykktar nokkrar ályktanir en 135 fulltrúar þeirra 19 aðildarfélaga sem eiga aðild að SGS sátu fundinn. Unnið var í nokkrum nefndum inni á þinginu en málefnanefndirnar voru tvær: Kjara- og atvinnumálanefnd og Húsnæðis- og velferðarnefnd. Samþykkt var fjárhagsáætlun fyrir næstu tvö árin og sömuleiðis starfsáætlun en í ljósi góðrar stöðu sambandsins var skatthlutfall aðildarfélaganna lækkað. Þá var sérstaklega fjallað um reglur varðandi félagsaðild og hugsanlega samræmingu reglna á milli sjúkrasjóða. Þingið samþykkti svohljóðandi málefnaályktanir: Ályktun um húsnæðis- og velferðarmál Ályktun um fjölskylduvænna samfélag Ályktun um kjara- og atvinnumál Ályktun um lífeyrismál
  1. 6/4/2025 1:11:55 PM Burt með mismunun - ný vefsíða
  2. 5/5/2025 3:54:17 PM VLFS vinnur mál í Félagsdómi vegna alvarlegra brota gegn fél…
  3. 5/2/2025 2:10:50 PM Orlofsuppbót 2025 - reiknivélar fyrir félagsmenn
  4. 4/30/2025 2:33:52 PM Fjölbreytt dagskrá á baráttudegi verkalýðsins