Ályktanir formannafundar Starfsgreinasambandsins

„Hugmyndir um almenna lækkun skulda sem á að greiða með eftirlaunum verkafólks er aðför að lífeyrissparnaði og á það er ekki hægt að fallast,“  segir í ályktun formannafundar Starfsgreinasambandsins sem lauk í dag á Egilstöðum. Mikil samstaða og samhugur var á fundinum meðal formanna aðildarfélaga sambandsins, þar sem staða efnahagsmála og undirbúningur kjaraviðræðna var til umfjöllunar.  Megin markmið komandi kjarasamninga verður að stöðva svo fljótt sem verða má þá kjara- og kaupmáttarskerðingu sem orðið hefur undanfarin tvö ár og endurreisa kaupmáttinn að nýju. Menn höfðu hins vegar miklar áhyggjur af þeim skorti á trausti sem ríkir í samfélaginu og tefur fyrir því brýna endurreisnarstarfi sem vinna þarf. Heilbrigðisþjónustan þarf að vera skilvirk og hagkvæm. Tryggja verður öfluga nærþjónustu heilbrigðisstofnana í heimabyggð. „Hvers konar fljótræði eins og virðist vera raunin í fram komnum niðurskurðartillögum fjárlagafrumvarpsins er ekki til þess fallið að skila árangri,“ segir í ályktun um heilbrigðiskerfið sem samþykkt var einróma á fundinum ásamt ályktun um kjaramál. Þær fylgja hér með. Ályktun um efnahags- og kjaramál Formannafundur aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands haldinn 14. október 2010, telur það vera megin markmið komandi kjarasamninga að stöðva svo fljótt sem verða má þá kjara- og kaupmáttarskerðingu sem orðið hefur undanfarin tvö ár og endurreisa kaupmáttinn að nýju. Til þess að svo megi verða þarf að auka atvinnustigið með öllum tiltækum ráðum og treysta stöðugleika í stjórnmálum þannig að traust verði endurheimt milli þings og þjóðar. Sá skortur á trausti sem ríkir í samfélaginu tefur fyrir þeirri brýnu endurreisn sem við blasir og mun ekki leysa vanda heimilanna. Hugmyndir um almenna lækkun skulda sem á að greiða með eftirlaunum verkafólks er aðför að lífeyrissparnaði og á það er ekki hægt að fallast. Fundurinn telur hins vegar að lagfæra þurfi gjaldþrotaskiptalögin þannig að einstaklingar sem missa húsnæði sitt við nauðungarsölu dragi ekki með sér  húsnæðisskuldir eftir þá sölu. Fundurinn leggur ríka áherslu á að aðstoða þurfi sérstaklega atvinnulaust fólk í vanda, þannig að það geti búið í húsnæði sem hæfir  fjölskyldustærð viðkomandi einstaklinga. Fundurinn telur að endurreisa verði félagslega íbúðakerfið. Ályktun um heilbrigðisþjónustu Formannafundur aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands haldinn á Egilstöðum 14. október 2010 hafnar niðurskurði í velferðarkerfinu sem bitnar á öryggi heilbrigðisþjónustunnar. Tryggja verður öfluga nærþjónustu heilbrigðisstofnana í heimabyggð m.a ungbarnaeftirlit, öldrunarþjónustu og hjúkrunarstarfemi. Aðgengi að sérfræðiþjónustu lækna og sjúkarhúsum verður að vera miðsvæðis í hverjum landsfjórðungi. Heilbrigðisþjónustan þarf að vera skilvirk og hagkvæm og þess vegna verður umræðan um sparnað í kerfinu að taka mið af ofangreindum sjónarmiðum til lengri tíma litið. Hvers konar fljótræði eins og virðist vera raunin í fram komnum niðurskurðartillögum fjárlagafrumvarpsins er ekki til þess fallið að skila árangri. Formannafundurinn krefst víðtæks samstarfs og samráðs við heimamenn og starfsfólk um endurskipulagningu heilbrigðiskerfisins.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag