Á morgun, 11. janúar, fer fram fundur undir yfirskriftinni
Áreitni á vinnustöðum, NEI TAKK! Fundurinn er haldinn að frumkvæði stjórnar Vinnueftirlits ríkisins þar sem sæti eiga fulltrúar stærstu samtaka aðila vinnumarkaðarins auk fulltrúa ráðherra. Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík kl. 8.00-10.30. Ekkert kostar á fundinn en
skráning er nauðsynleg. Þá verður fundinum jafnframt streymt af heimasíðu Vinnueftirlitsins (
www.vinnueftirlit.is).
Tilgangur fundarins er vekja athygli á mikilvægi þess að efla forvarnir á sviði vinnuverndar með sérstaka áherslu á einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Í lok fundarins verður borin upp viljayfirlýsing og hún undirrituð af stjórnvöldum, aðilum vinnumarkaðarins, fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum. Einnig verður hægt að undirrita yfirlýsinguna rafrænt á vef Vinnueftirlitsins að fundi loknum.
Dagskrá
- 08:00 Kaffiveitingar
- 08:30 Setning, Eyjólfur Sæmundsson forstjóri Vinnueftirlitsins
- 08:40 Ávarp forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur
- Innlegg frá aðilum vinnumarkaðarins
- 08.50 BSRB - Elín Björg Jónsdóttir
- 09:00 Gallup - Tölur um kynferðisleg áreitni á vinnumarkaði
- 09:10 Fjármála- og efnahagsráðuneyti
- 09:20 Alþýðusamband Íslands - Gylfi Arnbjörnsson
- 09:30 BHM - Þórunn Sveinbjarnardóttir
- 09:40 Samtök atvinnulífsins - Hilmar Sigurðsson, Sagafilm
- 09:50 Samband íslenskra sveitarfélaga - Hildur J. Gísladóttir
- 10:00 Ávarp og lokaorð félags- og jafnréttismálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason
- 10.10 Undirritun viljayfirlýsingar
- 10.30 Fundarslit
Fundarstjóri: Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins