Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning hafin

Rafræn atkvæðagreiðsla hjá 18 af aðildarfélögum SGS um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands við Samtök atvinnulífsins fyrir störf á almennum vinnumarkaði, sem undirritaður var 3. apríl síðastliðinn, hófst á slaginu kl. 13:00 í dag og lýkur þriðjudaginn 23. apríl kl. 16:00. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða tilkynntar 24. apríl. Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn í aðildarfélögum SGS sem vinna eftir viðkomandi samningi og greiddu félagsgjöld til einhvers aðildarfélaga SGS í janúar/febrúar 2019. Kynningarefni hefur verið sent út í pósti samkvæmt kjörskrá. Frekara kynningarefni um samninginn má nálgast hér. Fái einhver, sem telur sig eiga atkvæðisrétt, kynningarefnið ekki sent getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns stéttarfélags og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem sanni afdregin félagsgjöld í janúar/febrúar 2019. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 16.00 þriðjudaginn 23. apríl en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn. Félagsmenn eru eindregið hvattir til að nýta réttindi sín og greiða atkvæði!        
  1. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  2. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  3. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  4. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta