Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning hafin

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífins hófst á slaginu kl. 8:00 á morgun (12. júní) og mun henni ljúka kl. 12:00 þann 22. júní nk. Allir kosningabærir félagsmenn fá kynningarbækling sendan í pósti og ætti hann að berast félagsmönnum á næstu dögum. Í bæklingnum má m.a. finna lykilorð sem þarf að nota þegar greitt er atkvæði. Allir félagsmenn eru á kjörskrá í atkvæðagreiðslunni og er framkvæmdin með rafrænum hætti. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta kosið hjá stéttarfélagi sínu. Félagsmenn fara inn á heimasíðu Starfsgreinasambandsins (www.sgs.is) og smella á „Kjarasamningar 2015“. Þar geta félagsmenn greitt atkvæði með því að nota lykilorðið sem finna má á forsíðu bæklingsins. Notast er við sömu kjörskrá og notuð var þegar greitt var atkvæði um verkfall. Ef einhver félagsmaður sem starfar á almenna markaðnum en fær ekki kynningarbækling og lykilorð þá getur sá hinn sami haft samband við félagið sitt og kært sig inn á kjörskrá.
  1. 11/12/2025 10:28:33 AM Auknar líkur á atvinnuleysi út árið 2027
  2. 10/24/2025 10:18:48 AM Stofnanasamningur undirritaður við Náttúruverndarstofnun og…
  3. 10/23/2025 1:50:21 PM Kvennaverkfall um land allt
  4. 10/13/2025 12:28:50 PM Stefnan skýr til næstu tveggja ára