Áttin - ný vefgátt

Nú í nóvember opnaði ný vefgátt - Áttin, sem greiðir leið fyrirtækja að umsóknum að starfsmenntasjóðum og fræðslustofnunum. Um er að ræða sameiginlegt verkefni atvinnurekenda og launafólks á almennum vinnumarkaði. Fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins hafa lengi óskað eftir einfaldara kerfi og greiðari leið fyrir þau til að sækja í fræðslu- og starfsmenntasjóði. Þau fyrirtæki þar sem starfsmannahópurinn er fjölbreyttur og greitt er af í mismunandi stéttarfélög, hafa hingað til þurft að sækja til margra sjóða og fræðslustofnana um styrki. Héðan í frá eiga þau að geta sótt um styrki fyrir nær allt sitt fólk með aðeins einni umsókn. Sjóðirnir sem standa að Áttinni eru Landsmennt, (einn af fræðslusjóðum SGS), IÐAN fræðslusetur, Menntasjóður Verkstjórasambandsins og SA, Rafiðnaðarskólinn, Starfsafl, Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks og Starfsmenntasjóður verslunarinnar. Ætla má að sjóðirnir nái til um 110-120 þúsund starfsmanna á almenna vinnumarkaðnum eða um 75-80% starfsmanna á þeim vinnumarkaði. Fyrirtæki eru hvött til að kynna sér Áttina og senda ábendingar til Sveins Aðalsteinssonar verkefnisstjóra Áttinnar (sveinn@attin.is) sem jafnframt er fyrirtækjum til aðstoðar við fjármögnun fræðslu í fyrirtækjum. Heimsækja vefgáttina.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA