Atvinnuleysi mældist 3,5% á þriðja ársfjórðungi 2015

Á þriðja ársfjórðungi 2015 mældist atvinnuleysi 3,5%. Atvinnuþátttaka var 83,3% og hlutfall starfandi nam 80,4%. Þetta kemur fram í nýju hefti Hagtíðinda Hagstofunnar um vinnumarkaðinn. Atvinnuþátttaka 83,3% Á þriðja ársfjórðungi 2015 voru 192.800 manns á vinnumarkaði sem jafngildir 83,3% atvinnuþátttöku. Frá þriðja ársfjórðungi 2014 hefur fólki á vinnumarkaði fjölgað um 2.400 og atvinnuþátttakan aukist um eitt prósentustig. Atvinnuþátttaka kvenna á þriðja ársfjórðungi 2015 var 79,3% en karla 87,3%. Á þriðja ársfjórðungi 2014 var hlutfall kvenna á vinnumarkaði nánast það sama og nú eða 79,4% en hlutfall karla var 82,3%. Á vinnumarkaði eða til vinnuaflsins teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Atvinnuþátttaka er hlutfall starfandi og atvinnulausra (vinnuafl) af mannfjölda 16-74 ára. Hlutfall starfandi 80,4% Á þriðja ársfjórðungi 2015 voru 186.000 manns starfandi eða 80,4% af mannfjölda. Frá þriðja ársfjórðungi 2014 til þriðja 2015 fjölgaði starfandi fólki þegar á heildina er litið um 3.200 manns og hlutfallið hækkaði um 1,3 prósentustig. Hlutfall starfandi kvenna var 76,1% og starfandi karla 84,6%. Starfandi konum fjölgaði um 600 og körlum um 2.500 frá þriðja ársfjórðungi 2014. Hlutfall starfandi kvenna var þá 75,7% og starfandi karla 82,3%. Atvinnuleysi 3,5% Á þriðja ársfjórðungi 2015 voru að meðaltali 6.800 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 3,5% vinnuaflsins.Atvinnuleysi mældist 4% hjá konum og 3,1% hjá körlum. Samanburður þriðja ársfjórðungs 2015 við sama ársfjórðung 2014 sýnir að atvinnulausum fækkaði um 900 manns og hlutfallið lækkaði um 0,7 prósentustig.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA