Atvinnuþátttaka mælist 80%

Samkvæmt nýjustu vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar, sem gerð var í desember sl., mældist atvinnuþátttaka hér á landi 80%. Það þýðir að af þeim 183.700 manns sem voru að jafnaði á vinnumarkaði voru 175.800 af þeim starfandi og 7.900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuleysi mældist því 4,3%. Atvinnuþátttaka Íslendinga hefur minnkað um 0,8% ef miðað er við sama tíma fyrir ári síðan, en atvinnuleysi minnkað um 0,1%. Lesa má nánar um framkvæmd og aðferð rannsóknarinnar á vef Hagstofunnar external link icon.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA