Eining-Iðja ályktar um fjárlagafrumvarpið

Á stjórnarfundi Einingar-Iðju í gær samþykkti stjórn félagsins eftirfarandi ályktun um fjármálafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Stjórnin lýsir þar m.a. yfir miklum vonbrigðum með fjárlagafrumvarpið og þeim skerðingum sem í því má finna.

Stjórn Einingar-Iðju lýsir yfir miklum vonbrigðum með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og þeim skerðingum sem í því má finna. Á síðustu árum hefur almennt launafólk tekið á sig miklar skerðingar með minnkandi tekjum og auknum útgjöldum sem leitt hafa til minni kaupmáttar. Á meðan eru tekjur ríkissjóðs skertar um tugi milljarða með því að aflétta sköttum af fyrirtækjum og einstaklingum sem vel eru aflögufærir. Nú á enn og aftur að auka álögur á almennt launafólk og niðurskurðarhnífnum beint að þeim sem síst skyldi. Atvinnulausum, lífeyrisþegum, sjúklingum, þeim sem þurfa á starfsendurhæfingu að halda og þeim sem hafa minnstu menntunina. Forystumenn ríkisstjórnarinnar halda því fram að mótvægisaðgerðir muni bæta hag heimila í landinu að meðaltali, en það meðaltal hallar verulega á þá sem lægri hafa launin og virðist sem hópurinn sé ekki í forgangi hjá ríkisstjórninni. Hækkun barnabóta og breytingar á vörugjöldum jafna ekki út hækkun matvæla hjá þeim sem lægst hafa launin. Fjölmargir launþegar sem eru með lágar- og millitekjur eru barnlausir eða með eldri börn á framfæri og of margir sem ekki geta veitt sér þann munað að vera tíðir gestir í verslunum sem geta lækkað verð í kjölfar afnáms almennra vörugjalda. Stjórn Einingar-Iðju mótmælir harðlega þeirri aðför sem stjórnvöld eru í gegn þeim sem eru í atvinnuleit, sérstaklega þeim einstaklingum sem hafa verið hvað lengst án atvinnu. Skerðing á bótarétti getur kippt fótunum undan lífsafkomu fjölda fólks og atvinnuleysi mun ekki minnka við það að velta vandanum yfir á sveitarfélögin. Stjórn Einingar-Iðju gerir mjög alvarlegar athugasemdir við: • Hækkun lægra þreps virðisaukaskatts úr 7% í 12% • Skerðingu réttar til atvinnuleysisbóta • Svik við gefin fyrirheit um framlag til VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs • Skerðingu framlaga til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða • Skert framlög til mennta-, heilbrigðis- og vinnumarkaðsmála Að óbreyttu er ljóst að það stefnir í hörð átök á vinnumarkaði því ofangreind atriði auðvelda ekki þá kjarasamningsgerð sem framundan er. Stjórn Einingar-Iðju skorar á ríkisstjórn Íslands að endurskoða tafarlaust framkomið fjárlagafrumvarp. Ábyrgðin er ekki bara okkar.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA