Erlent starfsfólk í brennidepli

Það hefur varla farið fram hjá neinum að fjölgun útlendinga á íslenskum vinnumarkaði hefur verið mikil undanfarin misseri og er ekki fyrirséð hver sú fjölgun mun endanlega verða. Þessi mikla fjölgun hefur því miður haft í för með sér stöðugt vaxandi vanda vegna undirboða á vinnumarkaði og tíð brot á kjarasamningum. Upp hafa komið fjölmörg dæmi um erlent starfsfólk sem starfar hjá erlendum „þjónustuveitendum með tímabundna starfsemi“  hér á landi sem fær laun og önnur starfskjör sem eru langt undir því sem íslenskir kjarasamningar kveða á um. Einnig er starfsemi starfamannaleiga vaxandi og þá eru einnig dæmi um gerviverktöku. Við þessari þróun er mikilvægt að sporna, m.a. með aukinni fræðslu og upplýsingagjöf sem og stórbættu eftirliti á vinnustöðum. Um þessar mundir leggja bæði Starfsgreinasambandið (SGS) og Alþýðusamband Íslands (ASÍ) ríka áherslu á aukna upplýsingagjöf til útlendinga á íslenskum vinnumarkaði. Nýverið hleypti ASÍ af stokkunum samstarfsverkefninu "Einn réttur - ekkert svindl!", en því er beint er gegn undirboðum á vinnumarkaði og svartri atvinnustarfsemi, með sérstakri áherslu á útlendinga og ungt fólk. Nú í febrúar mun SGS setja málefni erlends starfsfólk í brennidepil með sérstöku kynningarátaki. Átakið felst m.a. í því að kynna helstu réttindi og skyldur fyrir erlendu starfsfólki með dreifingu á kynningarefni í gegnum facebooksíðu SGS og verður efnið á íslensku, ensku og pólsku. Frekari upplýsingar um kynningarátak SGS má nálgast hér.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA