Formannafundur afstaðinn

Formenn og varaformenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins hittust á tveggja daga fundi á Ísafirði dagana 9. og 10. september. Til umfjöllunar voru hefðbundin mál  og dagskrá vetrarins en auk þess var sérstaklega fjallað um vinnustaðaeftirlit og mansal á vinnumarkaði. Halldór Grönvold aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ fjallaði um verkefni sambandsins og stéttarfélaga í vinnustaðaeftirliti og kom fram sterkur vilji til að efla það enn frekar um allt land. Snorri Birgisson sérfræðingur hjá lögregluyfirvöldum fjallaði um mansalsmál á vinnumarkaði. Starfsgreinasambandið er með fulltrúa í samráðshópi á vegum innanríkisráðuneytisins sem stendur fyrir fræðslufundum um mansalsmál. Slíkir fundir eru á dagskrá í vetur víða um land til að stefna saman lögregluyfirvöldum, félagsmálayfirvöldum, heilbrigðisstarfsfólki og verkalýðsfélögum til að fræðast og koma á samstarfi ef grunur vaknar um mansal. Fjárlagafrumvarpið var til umfjöllunar og var samþykkt ályktun á fundinum sem fyrstu viðbrögð SGS: „Formannafundur Starfsgreinasambandsins mótmælir harðlega þeirri herferð sem ríkisstjórnin er í gegn atvinnulausum og öðru tekjulágu fólki og birtist í nýju fjárlagafrumvarpi. Skerðing á bótatíma atvinnulausra er afturhvarf til fortíðar. Með hækkun á matarskatti er verið að velta álögum frá tekjuhæsta fólkinu yfir á lágtekjufólk. Formenn og varaformenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins sem nú funda á Ísafirði munu berjast hart gegn öllum þeim áformum sem birtast í frumvarpinu og verða til þess að rýra enn afkomu almenns launafólks og sérstaklega þeirra tekjulægstu.“
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag