Formannafundur SGS á Egilsstöðum

Dagana 10. og 11. september heldur Starfsgreinasambandið formannafund og verður hann að þessu sinni haldinn á Hótel Héraði á Egilsstöðum. Um er að ræða útvíkkaðan fund, þ.e.a.s. til fundarins eru boðaðir formenn aðildarfélaga SGS auk eins fulltrúa til viðbótar frá hverju félagi. Ýmis mál eru á dagskrá fundarins, m.a. umræða stöðuna á kjara- og samningamálum, nýlegar niðurstöður gerðardóms og undirbúningur fyrir afmælisþing SGS sem fer fram í október næstkomandi.  Meðal annarra dagskrárliða má nefna kynningu á atvinnulífi á Austfjörðum og umræður um áhrif innflutningsbanns Rússa á landvinnslufólk. Gert er ráð fyrir að fundurinn standi frá kl. 09:00 á fimmtudeginum og ljúki um kl. 11:00 á föstudeginum.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA