Formannafundur SGS á Ísafirði

Dagana 9. og 10. september heldur Starfsgreinasambandið formannafund og verður hann að þessu sinni haldinn á Hótel Ísafirði. Um er að ræða útvíkkaðan fund, þ.e.a.s. til fundarins eru boðaðir formenn aðildarfélaga SGS auk eins fulltrúa til viðbótar frá hverju félagi.  Fjölmörg mál eru á dagsská fundarins, s.s. umræða um kjaramál, framsaga um vinnustaðaskírteini og vinnustaðaeftirlit auk þess sem þing ASÍ verður til umræðu. Meðal annarra dagskrárliða má nefna erindi frá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða um stöðu atvinnulífs á Vestfjörðum, kynningu á starfsáætlun, ársreikningi og fjárhagsáætlun SGS og stefnu SGS varðandi sameiginleg dómsmál. Gert er ráð fyrir að fundurinn standi frá kl. 13:00 á þriðjudeginum og ljúki um kl. 16:00 á miðvikudeginum.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag