Fræðsla fyrir ungt fólk

Félagsmálaskóli alþýðu (FMA) hefur tekið saman kynningarefni sem er sérstaklega ætlað ungu fólki sem er að stíga sín fyrstu spor á vinnumarkaðnum. Kynningin er sett fram á myndrænan og líflegan hátt með aðstoð nýjustu tækni. FMA hefur á undanförnum vikum farið með umrædda kynningu í nokkra af framhaldsskólum landsins þar sem hún hefur hún vakið mikla lukku meðal nemenda. Í kynningunni er m.a. fjallað um helstu réttindi og skyldur launafólks, skyldur atvinnurekenda gagnvart starfsfólki, ráðningarsamninga og launaseðla. Hægt er að horfa á kynninguna hér að neðan og hvetur SGS sem flesta til að gera svo - bæði unga sem aldna. [hr toTop="false" /]
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag