Fræðsludagur félagsliða

Miðvikudaginn 22. nóvember næstkomandi verður hinn árlegi fræðsludagur félagsliða haldinn á Grand Hótel Reykjavík. Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði, en viðburðurinn er opinn félagsliðum um allt land óháð stéttarfélagi. Nauðsynlegt er að skrá sig hjá Drífu Snædal (drifa@sgs.is) fyrir 15. nóvember. Félagsliðar um allt land eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að fræðast og ekki síst hitta aðra félagsliða og ræða sameiginleg málefni. Dagskrá Kl. 10:00 – 11:00              Hópavinna um stöðu félagsliða og framtíðarsýn Kl. 11:30 – 12:00              Samantekt og umræður Kl. 12:00 – 13:00              Hádegismatur Kl. 13:00 – 14:00              Félagsliðar sem burðarstoð í velferðarkerfi framtíðarinnar Kl. 14:00 – 14:40              Kynning á nýju framhaldsnámi félagsliða Kl. 14:40 – 15:00              Kaffi Kl. 15:00 – 15:45              Að njóta sín í starfi og koma í veg fyrir kulnun Kl. 16:00                            Fundalok  
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA