Framvegis ryður brautina í endurmenntun atvinnubílstjóra

Framvegis – miðstöð símenntunar er fyrsti viðurkenndi námskeiðshaldarinn sem hlýtur starfsleyfi frá Samgöngustofu vegna endurmenntunar atvinnubílstjóra en leyfið hlaust síðastliðinn miðvikudag. Í því felst að skipulag, innihald og fagstjórn námskeiða hjá Framvegis taki mið af þeim kröfum sem gerðar eru til námskeiðshaldara, bæði í námskrá Samgöngustofu og opinberum reglugerðum er varða endurmenntun bílstjóra. Framvegis býður atvinnubílstjórum sérsniðin námskeið í endurmenntun sem Samgöngustofa hefur viðurkennt og samræmast ákvæðum í reglugerð nr. 830/2011 um ökuskírteini. Í kjölfar breytinga á umferðarlögum 50/1987 skulu ökumenn sem stjórna ökutækjum í C1-, C-, D1- og D-flokki til farþega- og vöruflutninga í atvinnuskyni gangast undir endurmenntun á fimm ára fresti. Fyrsta námskeiðið var haldið síðast liðinn laugardag í samstarfi við Eimskip. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk Framvegis í síma 5811900 eða í gegnum netfangið bilstjori@framvegis.is Hér má nálgast kynningarefni um námskeiðin.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag