Fundur með Vinnueftirlitinu vegna vinnustaðaeftirlits

Fulltrúar Alþýðusambands Íslands áttu fund með Vinnueftirlitinu (VER) síðastliðinn föstudag til að ræða samstarf og upplýsingamiðlun á milli ASÍ og Vinnueftirlitisins vegna eftirlits með starfsaðstæðum erlends starfsfólks. Á fundinum kynntu fulltrúar Vinnueftirlitsins eftirlit stofnunarinnar með erlendu starfsfólki í mannvirkjagerð, fjölluðu um verkkaupaábyrgð, eftirlitsheimildir, þá þætti sem einna helst eru í ólagi á byggingarvinnustöðum sem og tegundir brota á erlendu starfsfólki. Þá ræddu fundarmenn einnig um grundvöll fyrir auknu samtarfi og upplýsingarmiðlun milli Vinnueftirlitsins og ASÍ/stéttarfélaganna. Fulltrúar SGS á fundinum voru þeir Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar, og Árni Steinar Stefánsson, sérfræðingur SGS.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA