Fyrsti vinnufundur starfsmatsnefndar SAMSTARFS

Fyrsti vinnufundur starfsmatsnefndar SAMSTARFS var haldinn í húsakynnum BSRB í gær, en nefndin hefur m.a. það hlutverk að skoða sameiginlega hvernig til hefur tekist með innleiðingu og framkvæmd starfsmatskerfisins SAMSTARF og með hvaða hætti megi tryggja áframhaldandi þróun þess. Í nefndinni sitja fulltrúar frá aðildarfélögum BSRB, SGS og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Á fundinum kynntu starfsmatsráðgjafar starfsmatskerfið fyrir gestum, fulltrúar frá Starfsmennt og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins mættu og kynntu sína starfsemi auk þess sem talsverður tími fór í umræður og hópavinnu. Fulltrúar SGS á fundinum í gær voru þau Signý Jóhannesdóttir, Björn Snæbjörnsson, Linda Baldursdóttir, Drífa Snædal og Árni Steinar Stefánsson. Áætlað er að næsti fundur í nefndinni verði haldinn 30. nóvember n.k. Hægt er að lesa nánar um starfsmatskerfið SAMSTARF á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag