Hörður Guðbrandsson nýr formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur

Hörður Guðbrandsson hefur tekið við formennsku Verkalýðsfélags Grindavíkur, en hann tekur við embættinu af Magnúsi Má Jakobssyni sem gegnt hefur formennsku í félaginu frá árinu 2012. Hörður er búfræðingur að mennt og hefur starfað við ýmsa verkamannavinnu í gegnum tíðina, m.a. sem bílstjóri, verkstjóri og sjómaður. Hörður var í bæjarstjórn Grindavíkur í 10 ár og forseti bæjarstjórnar megnið af þeim tíma. Þá hefur Hörður setið í stjórn Kölku og SSS (Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum) auk þess að hafa sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið og fleiri félög. Einnig var Hörður varaformaður Verkalýðsfélags Grindavíkur um tíma. Starfsgreinasambandið býður Hörð velkominn í formannahóp sambandsins og þakkar í leiðinni Magnúsi fyrir farsælt samstarf í gegnum tíðina. [caption id="attachment_269113" align="alignleft" width="300"] Hörður og Magnús við formannaskiptin[/caption]              
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag