Hvers virði er íslenskur landbúnaður? Málþing SGS 26. apríl n.k.

Starfsgreinasamband Íslands, matvælasvið, heldur opið málþing um þróun og atvinnutækifæri í landbúnaðartengdum greinum að Hótel Selfossi, mánudaginn 26. apríl n.k. Málþingið hefst kl. 11:00 með ávarpi formanns sambandins, Kristjáns Gunnarssonar. Þá mun landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason ávarpa fundinn. Á málþinginu verða flutt stutt erindi m.a. um samspil landbúnaðar og ferðaþjónustu, um nýsköpun í matvælaframleiðslu og ný tækifæri. Einnig verður fjallað um styrkjakerfið, gróðurhúsabændur lýsa sóknarfærum auk þess sem formaður bændasamtakanna, Haraldur Benediktsson, leggur orð í belg. Málþingið, mun leitast við að svara spurningum um það hvers virði íslenskur landbúnaður er í atvinnusköpun á Íslandi og hvað þurfi til að fjölga störfum í greininni og gera þau verðmeiri. Halldóra Sveinsdóttir, sviðstjóri matvælasviðs SGS stýrir málþinginu. Ekkert þátttökugjald er á málþinginu, sem er eins og áður sagði opið öllum sem áhuga hafa á málefninu. Þess er óskað að væntanlegir þátttakendur tilkynni þátttöku sína með tölvupósti á netfangið sgs@sgs.is . Dagskráin fer hér á eftir: Hvers virði er íslenskur landbúnaður? Matvælasvið Starfsgreinasambands Íslands heldur málþingi um landbúnaðarmál á Íslandi, stöðu greinarinnar og tækifæri, mánudaginn 26. apríl 2010 að Hótel Selfossi. Málþingið, mun leitast við að svara spurningum um það hvers virði íslenskur landbúnaður er í atvinnusköpun á Íslandi og hvað þurfi til að fjölga störfum í greininni og gera þau verðmeiri. Dagskrá: Kl. 11:00 Málþingið sett af Kristjáni Gunnarssyni formanni SGS. Kl. 11.10 Ávarp landbúnaðarráðherra, Jóns Bjarnasonar. Kl. 11:25 Samspil landbúnaðar og ferðaþjónustu . Skúli Thoroddsen framkvæmdastjóri SGS. Kl. 12:00 Bragð að íslenskum landbúnaði . Hádegisverður að Hótel Selfossi. Kl. 13.00 Verðmæti landbúnaðarins og styrkjakrefið. Sigurður Jóhannsson, hagfræðingur, Hagfræðistofnun HÍ. Kl. 13:20 Hvernig aukum við verðmætin í íslenskum landbúnaði? Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís. Kl. 13:45 Treystum á landbúnaðinn. Haraldur Benediksson, formaður Bændasamtaka Íslands. Kl. 14:20 Sóknarfærin. Georg Ottósson – Flúðasveppir. Kl. 14:40 Sóknarfærin. Knútur Rafn Ármann – Friðheimum Reykholti. Kl. 15:10 Hvers virði er landbúnaðurinn? Umræður þátttakenda. Kl. 15:50 Málþingsslit. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar- Iðju og varaformaður SGS Kaffi og kaka í boði SGS. Eftir hverja framsögu eru fyrirspurnir og stuttar umræður. Ekkert þátttökugjald er á málþinginu. Halldóra Sveinsdóttir, sviðstjóri matvælasviðs SGS stýrir málþinginu.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag