Í kjölfar Kveiks

Starfsgreinasambandið hefur árum saman barist gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði og gegn þrælahaldi hvers konar. Í kjölfar Kveiks, fréttaskýringaþáttarins sem var sýndur á þriðjudagskvöld hafa fjölmargir hringt og velt fyrir sér hvað hægt sé að gera. Hér fyrir neðan eru hlekkir á tillögur Starfsgreinasambandsins, ályktanir og aðgerðir til að stemma stigu við brotastarfsemi á vinnumarkaði. Félagsleg undirboð og brotastarfsemi verði ekki liðin á vinnumarkaði, ályktun formannafundar frá september 2018 Þrælahald nútímans - ákall um aðgerðir Fræðsluefni Starfsgreinasambandsins um mansal á vinnumarkaði
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag