Kjarasamningar SGS á prentuðu formi

Starfsgreinasambandið vill vekja athygli félagsmanna á að nú má nálgast hluta kjarasamninga sambandsins á prentuðu formi. Þeir samningar sem eru komnir úr prentun eru heildarkjarasamningur SGS og SA, samningur SGS við Bændasamtök Íslands og samningur SGS við Landssambands smábátaeigenda. Aðrir samningar eru í vinnslu og koma vonandi úr prentun á næstu vikum. Hafi félagsmenn hug á að nálgast eintak af umræddum samningum er þeim bent á að hafa samband við sitt stéttarfélag eða heimsækja skrifstofu þess, en þeir munu berast félögunum á næstu dögum. Eins og áður má nálgast alla samninga sambandins á rafrænu formi hér á vefsíðunni undir "Kaup & kjör".
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag