Kristján G. Gunnarsson nýtur fyllsta trausts í sínu félagi.

Bæði stjórn og varastjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis lýstu fyllsta trausti á Kristján G. Gunnarssonar formann félagsins á fundi sínum í gær. Stjórnin harmar jafnframt þá ákvörðun Kristjáns að draga sig út úr störfum fyrir Starfsgreinasambandið, ASÍ og Festu. Kristján var eindregið hvattur til þess að halda áfram formennsku í VSFK og til þess „að gegna áfram mikilvægum trúnaðarstörfum í þágu þess, meðal annars að leiða samninganefnd félagsins í þeim erfiðu kjaraviðræðum sem nú standa yfir. Fáir eru betur til þess fallnir,“ segir enn fremur í einróma samþykkt fundarins frá í gær, sem hér fer á eftir: Samþykkt  stjórnar og varastjórnar VSFK 7. febrúar 2011 „Í yfirlýsingu frá Kristjáni G. Gunnarssyni formanni VSFK frá 4. febrúar s.l telur hann að í umræðunni um fall Sparisjóðsins í Keflavík hafi trúverðugleiki hans sjálfs beðið hnekki. Af þeim ástæðum ákvað hann að falla frá formennsku í Starfsgreinasambandi Íslands og draga sig út úr stjórnarstörfum fyrir ASÍ og  í Festu - lífeyrissjóði. Stjórn og varastjórn VSFK harmar þessa ákvörðun Kristjáns og telur að sjónarmið hans sem fram komu í yfirlýsingunni hafi orðið undir í fjölmiðlaumræðunni. Kristján hafi engu að síður ákveðið að taka á sig meiri ábyrgð en tilefnið gaf til og að hann hafi í raun axlað ábyrgð sem öðrum bar. Það vita þeir sem vita vilja að fall Sparisjóðsins í Keflavík er ekki runnið undan stefnumörkun Kristján G. Gunnarssonar, heldur reyndi hann í samstarfi við Fjármálaeftirlitið að forða Sparisjóðnum frá falli þegar ljóst varð hvert stefndi eftir bankahrunið árið 2008 þegar aðrir yfirgáfu stjórn sjóðsins í kjölfarið. Stjórn og varastjórn VSFK lýsir þess vegna fyllsta trausti til Kristján G. Gunnarssonar og hvetur hann eindregið til þess að halda áfram formennsku í VSFK og til þess að gegna áfram mikilvægum trúnaðarstörfum fyrir félagið, meðal annars að leiða samninganefnd félagsins í þeim erfiðu kjaraviðræðum sem nú standa yfir. Fáir eru betur til þess fallnir.“
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag