Lágmarkstekjur fyrir fullt starf - kr. 280.000

Vert er að vekja athygli félagsmanna á eftirfarandi punktum varðandi lágmarkstekjur.
  • Lágmarkstekjur fyrir fullt starf - kr. 280.000
  • Fyrir dagvinnu og allar bónus-, álags- og aukagreiðslur
  • Miðað við 173,33 tíma á mánuði eða 40 stundir á viku
  • Greiða skal uppbót á laun þeirra sem ná ekki kr. 280.000 fyrir dagvinnu
  • Dæmi: Ef taxtinn er kr. 266.000 og viðkomandi fær engar aukagreiðslur, sem taldar eru upp hér að ofan, skal greiða kr. 14.000 uppbót á launin
Með vísan í samning milli ASÍ og SA um réttindi hlutavinnustarfsmanna þá eiga þeir jafnframt rétt á lámarkstekjutryggingu í samræmi við starfshlutfall. Þar sem taxtar eru í einhverjum tilfellum lægri en lágmarkstekjutrygging skal það bætt með eftirfarandi hætti: Mánaðarlega skal greiða uppbót á laun viðkomandi starfsmanna sem ekki ná framangreindum tekjum, en til launa í þessu sambandi teljast allar greiðslur, þ.m.t. hverskonar bónus-, álags og aukagreiðslur, sem falla til innan ofangreinds vinnutíma. Laun fyrir vinnu umfram 173,33 stundir á mánuði og endurgjald á útlögðum kostnaði reiknast ekki með í þessu sambandi. Almenni markaðurinn:
  • Fyrir þá sem eru 18 ára og eldri og hafa starfað a.m.k. sex mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki (þó að lágmarki 900 stundir)
  • Ríki og sveitarfélög: Fyrir þá sem eru 18 ára og eldri og hafa starfað a.m.k. fjóra mánuði samfellt hjá sömu stofnun
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA