Launamunur kynjanna: Ennþá langt í land

Samkvæmt gögnum frá Eurostat vinna konur í löndum Evróusambandsins sér inn að meðaltali 16,4% minna en karlar fyrir hverja vinnustund. Óleiðréttur launamunur kynjanna mælist minnstur í Slóveníu, en mestur mælist hann í Eistalandi - alls 30%. Þessar tölur gefa til kynna að launamunur kynjanna er ennþá mikill og þróunin í átt að jafnræði í þeim málum er afar hæg. Það er umhugsunarefni að þessar tölur skuli ennþá vera svo háar, sérstaklega þegar horft er til sífellt hærra menntunastigs og aukinnar reynslu kvenna á vinnumarkaði. Samkvæmt nýlegri launakönnun evrópskra samtaka launfólks í matvæla-, ferðaþjónustu og landbúnaði (EFFAT) sem samtökin gerðu meðal sinna aðildarfélaga/-sambanda mældist launamunur kynjanna enn meiri en hjá Eurostat, eða allt að 29%. Þess má geta að Starfsgreinasambandið er aðili að EFFAT.  Á þingi samtakanna, sem haldið var síðast liðið haust voru launamál kynjanna til umræðu þar sem m.a. voru mótaðar tillögur sem eiga að stuðla að því að vinna bug á þessu viðvarandi vandamáli og misrétti, sem launamunur kynjanna er. Nánari upplýsingar um niðurstöður þingsins má finna á vefsíðu EFFAT.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA