Mikill meirihluti hlynntur því að láglaunafólk fái meiri skattalækkun

Ný skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Alþýðusamband Íslands sýnir að 83% Íslendinga eru hlynntir því að launafólk með heildartekjur undir 500 þús. kr. á mánuði fyrir skatt, fái meiri skattalækkun en aðrir. Athygli vekur að stuðningur við slíka skattkerfisbreytingu er mikill í öllum aldurs- og tekjuhópum þó vissulega sé hann mestur hjá þeim tekjulægstu. Þessi niðurstaða rímar vel við þær hugmyndir um skattkerfisbreytingar sem ASÍ kynnti í lok janúar. Markmið þeirra tillagna var að létta byrðum af fólki með lágar- og millitekjur, auka jafnrétti og koma á sanngjarnri skattheimtu. Þegar ríkisstjórnin kynnti sínar skattalækkunar hugmyndir nokkrum vikum seinna kom í ljós að sama skattalækkun átti að ganga upp allan tekjustigann, þ.e. það skipti ekki máli hvort einstaklingurinn væri með 300 þús kr. eða 2,3 milljónir í mánaðartekjur, allir fengju það sama. Rannsókn hagdeildar ASÍ frá 2017 sýnir að skattbyrði hinna tekjulægstu hefur hækkað mest á undanförnum árum og dregið hefur úr jöfnunarhlutverki skattkerfisins. Munar þar mestu að skattleysismörk hafa ekki fylgt launaþróun og vaxta- og barnbótakerfin hafa markvisst verið veikt og eru nú í skötulíki miðað við það sem áður var. Könnun Gallup var gerð 1. - 12. mars 2019. Um netkönnuna var að ræða og var úrtakið 1440 manns af landinu öllu. Svarhlutfall var 57,1%.
  1. 6/4/2025 1:11:55 PM Burt með mismunun - ný vefsíða
  2. 5/5/2025 3:54:17 PM VLFS vinnur mál í Félagsdómi vegna alvarlegra brota gegn fél…
  3. 5/2/2025 2:10:50 PM Orlofsuppbót 2025 - reiknivélar fyrir félagsmenn
  4. 4/30/2025 2:33:52 PM Fjölbreytt dagskrá á baráttudegi verkalýðsins