Minningarmark reist um Elku Björnsdóttur

Fyrr í dag var minning Elku Björnsdóttur verkakonu heiðruð með því að reisa minningarmark við gröf hennar í Hólavallagarði við Suðurgötu. Leiði Elku hafði verið með öllu ómerkt og því vel viðeigandi að heiðra minningu þessarar merku konu með þeim hætti að merkja leiði hennar og lyfta um leið minningu hennar og verkum á loft með þessum hætti. Jónína Björg Magnúsdóttir verkakona flutti tvö lög við afhjúpun minningarmarksins. Eftir athöfnina í Hólavallargarði var svo haldið málþing þar sem sjónum var beint að sögu Elku og verkakvenna í Reykjavík í upphafi síðustu aldar. Á málþinginu flutti Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður Eflingar stéttarfélags, erindi til heiðurs Elku, en hægt er að lesa erindið í heild sinni hér. Elka Björnsdóttir verkakona fæddist 7. september 1881 að Reykjum í Lundarreykjadal. Árið 1906 fluttist hún til Reykjavíkur þar sem hún bjó til æviloka 3. mars 1924. Elka byrjaði að skrifa dagbók árið 1915 og gerði það nánast samfellt til ársins 1923. Dagbækurnar voru gefnar út í heild sinni árið 2012 og höfðu fram að því verið notaðar við rannsóknir sagnfræðinga og fleiri á atburðum sem áttu sér stað á ritunartíma þeirra. Þær eru mikilvæg samtímaheimild um líf fólks í Reykjavík á fyrstu áratugum síðustu aldar ekki síst verkafólks og þeirra sem áttu undir högg að sækja í samfélaginu. [caption id="attachment_140289" align="aligncenter" width="225"] Jónína Björg Magnúsdóttir, fiskvinnslukona á Akranesi, við athöfnina í dag.[/caption]
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag