Myndbönd um öryggismál í fiskvinnslu

Sjónvarpsstöðin N4 hefur gert sex myndbönd um öryggismál starfsfólks í fiskvinnslu undir yfirskriftinni „Öryggi er allra hagur“. Myndböndunum er ætlað að vera fræðandi og benda á mikilvægi þess að allir sem koma að vinnslunni séu meðvitaðir um að öryggis- og hreinlætismál séu í góðu lagi. Slysum í fiskvinnslum hefur því miður farið fjölgangi á undanförnum árum og því er mikilvægt að fyrirtæki í fiskvinnslu bregðist við með aukinni fræðslu í vinnuvernd, en komið hefur í ljós að slysin tengjast oftar en ekki vélbúnaði. Starfsgreinasambandið fagnar þessu framtaki og hvetur starfsfólk í fiskvinnslum til að kynna sér myndefnið - það er aldrei of varlega farið! Öll myndböndin má nálgast hér.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA