Nýr kjarasamningur fyrir beitningarmenn

Starfsgreinasamband Íslands og Landssamband Smábátaeigenda hafa undirritað nýjan kjarasamning vegna starfsmanna sem vinna við uppstokkun eða beitningu í landi. Samningurinn gildir jafnframt fyrir starfsmenn sem starfa við netavinnu. Aðalatriði samningsins er hækkun kauptryggingar í 236.095 krónur og eingreiðsla uppá 14.600 krónur til þeirra sem voru í fullu starfi í janúar 2014. Desember- og orlofsuppbætur hækka um samtals 32.300 krónur líkt og í aðalkjarasamningi SGS og SA. Orlofsrétturinn var töluvert styrktur þar sem fólk sem starfað hefur við beitningu eða netafellingu í 10 ár fær nú 30 daga orlofsrétt, en áður var sá réttur bundinn við að starfa hjá sama fyrirtæki í 10 ár. Réttur til að fá hlífðarfatnað var einnig styrktur og er nú tekið fram í samningnum að atvinnurekandi skuli leggja til svuntu, viðeigandi vettlinga, stígvél, buxur og slopp. Hlutfall af greiðslu fyrir uppstokkun á bjóða var lækkað úr 82% í 74%. Hægt er að kynna sér samninginn í heild hérPdf-icon.[hr toTop="false" /]
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag