Nýr kjarasamningur við SA undirritaður

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur undirritað nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins vegna starfa á hinum almenna vinnumarkaði. Helstu atriði nýs kjarasamnings
  • Kjarasamningarnir gilda frá 1. apríl 2019 - 1. nóvember 2022
  • Krónutöluhækkanir - 17 þúsund kr. hækkun á öll mánaðarlaun 1. apríl 2019
  • Lægstu laun hækka mest - 30% hækkun á lægstu taxta
  • Aukið vinnustaðalýðræði með möguleika á verulegri styttingu vinnutímans (mestu breytingar í tæpa hálfa öld)
  • Eingreiðsla upp á 26 þúsund kr. sem kemur til útborgunar í byrjun maí 2019
  • Skilyrði sköpuð fyrir verulegri vaxtalækkun á samningstímanum
  • Skattbyrði hinna tekjulægstu lækkar um 10 þúsund kr. á mánuði
Almenn hækkun á mánaðarlaun fyrir fullt starf
  • 1. apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
  • 1. apríl 2020 18.000 kr.
  • 1. janúar 2021 15.750 kr.
  • 1. janúar 2022 17.250 kr.
Kauptaxtar hækka sérstaklega
  • 1. apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
  • 1. apríl 2020 24.000 kr.
  • 1. janúar 2021 24.000 kr.
  • 1. janúar 2022 25.000 kr.
  Á árunum 2020-2023 komi til framkvæmda launaauki að gefinni ákveðinnar þróunar á vergri landsframleiðslu á hvern íbúa. Tenging við hagvöxt (hagvaxtarauki) tryggir launafólki hlutdeild í verðmætasköpuninni. Þetta ákvæði nýtist best þeim tekjulægri þar sem þessi hækkun fer af fullum þunga á taxtakaup og ¾ á önnur laun. Hagvaxtarauki getur hækkað taxtalaun um 3-13 þúsund á ári eftir því hvað verg landsframleiðsla á mann hækkar mikið á tímabilinu. Kjaratengdir liðir samningsins, t.d. bónusar, hækka um 2,5% á sömu dagsetningum og hækkanir mánaðarlauna nema um annað sé samið. Lágmarkstekjur fyrir fullt starf
  • 1. apríl 2019 317.000 kr. á mánuði
  • 1. apríl 2020 335.000 kr.
  • 1. janúar 2021 351.000 kr.
  • 1. janúar 2022 368.000 kr
  Desemberuppót (var 89.000 kr. 2018)
  • 2019 92.000 kr.
  • 2020 94.000 kr.
  • 2021 96.000 kr.
  • 2022 98.000 kr.
Orlofsuppbót fyrir hvert orlofsár (var 48.000 kr. 2018)
  • Maí 2019 50.000 kr.
  • Maí 2020 51.000 kr.
  • Maí 2021 52.000 kr.
  • Maí 2022 53.000 kr.
Eingreiðsla kemur sem sérstakt álag á orlofsuppbót árið 2019 uppá 26.000 kr. sem greiðist eigi síðar en 2. maí 2019. Forsendur kjarasamninganna eru eftirfarandi:
  1. Kaupmáttur launa hafi aukist á samningstímabilinu skv. launavísitölu Hagstofu Íslands.
  2. Vaxtir lækki verulega fram að endurskoðun samnings í september 2020 og haldist lágir út samningstímann.
  3. Stjórnvöld standi við gefin fyrirheit skv. yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninganna.
Forsendur kjarasamninga verða metnar í september 2020 og september 2021. Forsendurnefnd verður skipuð þremur fulltrúum frá hvorum samningsaðila.
  1. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  2. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  3. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  4. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta