Nýr samningur við Landssamband smábátaeigenda

Starfsgreinasamband Íslands og Landssamband smábátaeigenda hafa undirritað nýjan kjarasamning vegna starfsmanna sem vinna við uppstokkun eða beitningu í landi. Samningurinn gildir jafnframt fyrir starfsmenn sem starfa við netavinnu.Viðræður hafa staðið yfir frá því í sumar og eftir nokkuð strangar viðræður undanfarnar vikur náðu samningsaðilar loks saman í gær. Á fundi framkvæmdastjórnar SGS sem fór fram fyrr í dag var samningurinn tekinn til afgreiðslu þar sem hann var samþykktur samhljóða. Aðalatriði samningsins er hækkun kauptryggingar í rúmlega 300.000 kr. á samningstímanum, en samningurinn gildir  frá 1. maí 2015 - 31. desember 2018. Kauptrygging og aðrir launaliðir taka hækkunum sem hér segir: 9,5% frá 1. maí 2015, 8,0% 1.maí 2016, 4,5% 1. maí 2017 og 3,1% 1. maí 2018. Desember- og orlofsuppbætur hækka í takt við það sem áður hafði verið samið um í aðalkjarasamningi SGS og SA, en í lok samningstímans verður desemberuppbót kr. 89.000 og orlofsuppbót kr.  48.000. miðað við fullt starf. Hægt er lesa samninginn í heild sinni hér. [caption id="attachment_23214" align="aligncenter" width="590"]Magnús S. Magnússon og Halldór Ármannsson við undirritun samningsins. Magnús S. Magnússon, formaður Vlsfél. Sandgerðis og Halldór Ármannsson, formaður LS, við undirritun samningsins.[/caption]  
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA