Öllum tryggð atvinnutengd starfsendurhæfing

Samkomulag hefur náðst milli stjórnvalda og heildarsamtaka vinnumarkaðarins um hvernig framlög úr ríkissjóði til starfsendurhæfingarsjóða skuli háttað. Þetta samkomulag mun því binda enda á þá óvissu sem hópar sem standa utan vinnumarkaðar hafa þurft að sæta um þjónustu hjá VIRK- starfsendurhæfingarsjóði. Samkomulagið tryggir að öllum sem á þurfa að halda er nú tryggð atvinnutengd starfsendurhæfing til að verða virkir á vinnumarkaði. Félags- og húsnæðismálaráðherra mun fá fulltrúa í stjórn VIRK. VIRK fagnar þessu samkomulagi en Hannes G. Sigurðsson, formaður stjórnar VIRK, skrifaði undir það í gær ásamt Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra og Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra. Hannes segir það mjög ánægjulegt að aðilar vinnumarkaðarins og ríkisstjórnin taki höndum saman um að tryggja öllum starfsendurhæfingu því það sé ávísun á betri vinnumarkað. Fólk sem hafi lokið starfsendurhæfingu sé dýrmætt fyrir atvinnulífið því kraftar þess geti nýst vel. Óvænt áföll vegna veikinda eða slysa setji oft strik í reikninginn en VIRK hjálpi fólki að bæta líf sitt, nýta styrkleika sína og komast út á vinnumarkaðinn á ný.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA